Sælar stúlkur
Mér fannst svona heldur betur kominn tími á nýtt blogg og fyrst ég er í svona góðri þjálfun að blogga þessa dagana ákvað ég að breyta aðeins til á þessari síðu.
Er bara ekkert að gerast hjá ykkur? Fjóla og Kristey búnar að eignast glæsileg stúlkubörn og Katrín Dröfn búin að upplýsa að von sé á fjórða stráknum 18. október (svo talar fólk um fólksfækkun á Vestfjörðunum

). Oddný og María eru komnar af stað í ljósmæðranáminu, glæsilegt hjá þeim

Af mér er það að frétta að nú er ég búin að búa á Spáni í sól og hita í heilan mánuð!!
Worka tanið, Worka tanið

Búin með tvær annir í master í Bifröst og er á kafi í verkefnavinnu á þriðju önninni, milli þess sem ég labba (já, ég kann það !!) með krökkunum í skólann og til baka.
Hlakka til að heyra frá ykkur, þið getið fylgst með á síðunni minni sem er hér til hliðar.
Kveðja úr sólinni (reyndar úrfellinu síðustu dagana, en það á að vera sól og rúmlega 20 stiga hiti á morgun).
Jóhanna Spánverji
PS. Setti síðuna í haustliti, fyrst það fer nú bráðum að snjóa hjá ykkur...en EKKI hjá mér
Sorrý en við þessar breytingar tókst mér að henda út slóðum á bloggsíðurnar okkar. Setti inn nýjan kassa og bæti við þeim síðum sem ég veit að eru enn aðeins virkar. Þið bætið svo við því sem vantar.